DEMANTSSLÍPIVÖRUR
Höfum til sölu mikið úrval af gæða demants skífum, bollum og klossum undir flestar tegundir af gólfslípivélum á markaðinum á frábærum verðum.

Auk þess að bjóða úrval af sérhæfðum klossum PCD til að fjarlægja gólfefnaleifar eins og flot, málningu, steinteppi og annað sem hefðbundinn demantur ræður síður við.
Grófleiki ( grit ) á „metalpads“ er 16#, 30#, 60#, og 120# í flestum tilfellum. Við bjóðum demantsklossana í 4 litum. Hver litur vísar til um hörku steypunar sem meðhöndla þarf.
Gulllitaður er fyrir „soft floor“ SF. 2 – 3 á Mohs. skala.
Rauður er fyrir „medium floor“ MF. 3 – 5 á Mohs. skala.
Svartur er fyrir „hard floor“ HF. 5 – 7 á Mohs. skala.
Blár er fyrir „extra hard floor. XHF. 7 – 8 á Mohs. skala.









